Opus Futura hlýtur styrk frá Tækniþróunarsjóði
Opus Futura hlaut nýverið styrk frá Tækniþróunarsjóði í styrktarflokknum Fræ/Þróunarfræ.
Við erum afar þakklát fyrir styrkinn og lítum á hann sem mikla viðurkenningu og aðstoð við frekari þróun á lausninni okkar.
Opus Futura er að hanna og byggja háþróaða sjálfvirka lausn til að para vinnustaði og hæfileikaríka einstaklinga saman.