92% starfsfólks er enn í starfi ári seinna eftir pörun hjá Opus Futura*

Ástæðan er áreiðanlegri, gagnadrifin gervigreind sem finnur hæfasta starfsfólkið og metur raunverulega hæfni sem nær lengra en ferilskrár.

*skv könnun á meðal starfsfólks sem tóku starfi eftir pörun hjá Opus Futura.

PrófaðuVeldu starf og smelltu á manneskju

VerkefnastjóriPörun í gangi

Bestu paranirnar

Af hverju Anna passar í starfið

  • Leiðir teymiHefur stýrt 6 manna teymi í 4 ár
  • Sambærilegt starfVerkefnastjóri hjá verktakafyrirtæki
  • SkipulagSterkust í skipulagi í persónuleikamatinu

Fyrirtæki

Finndu rétta fólkið þó það sæki ekki um!

Náðu til fólks sem er ekki í virkri atvinnuleit en vill heyra af réttu tækifærunum.

Framsæknu vinnustaðirnir eru á Opus Futura

IcelandairLandsvirkjunArion bankiÍslandsbankiSíminnRio TintoBYKOBlue LagoonHagarOrigoLýsiKópavogsbær

ásamt yfir hundrað öðrum!

Við skiptum út ákvörðunum byggðum á „tilfinningu“ fyrir faglega, óhlutdræga og útskýranlega pörun.

Hver ráðning byggir á sannreyndum matstækjum og ítarlegri pörun sem tekur til þeirra þátta sem hvað mestu máli skipta við árangur í starfi.

Hefðbundin ráðning

Opus Futura

Hefðbundin ráðning: Ákvarðanir byggðar á innsæi

Ráðningarákvarðanir byggjast oft á huglægu mati frekar en mælanlegum niðurstöðum gagna.

Opus Futura: Skipt út fyrir gagnatengda pörun

Líkan okkar metur skipulögð merki um hæfni, hvata og vinnustíl til að styðja við hlutlægar ákvarðanir.

Hefðbundin ráðning: Hlutdrægni í skimun

Gervigreind, alveg eins og mannshugurinn, getur falið í sér ómeðvitaða hlutdrægni við mat á kanditötum á öllum stigum ferilsins. Ábyrg notkun gervigreindar er lykillinn að áreiðanlegri niðurstöðu.

Opus Futura: Mat með minnkuðu hlutdrægni

Viðkvæmar breytur eru útilokaðar og allar niðurstöður byggjast á gagnsæjum og útskýranlegum viðmiðum.

Hefðbundin ráðning: Ferilskrár segja ekki alla söguna

Ferilskrár veita oft gott grunnyfirlit en segja ekkert um raunverulega færni og persónubundna styrkleika einstaklinga sem parast.

Opus Futura: Rétt pörun umfram ferilskrár

Við greinum hvernig einstaklingur vinnur, hvað hvetur hann áfram og hvernig hann passar inn í tiltekið umhverfi.

Hefðbundin ráðning: Ósamræmi uppgötvað eftir ráðningu

Hættan við hefðbundnar ráðningar er að ósamræmi kemur ekki í ljós fyrr en einstaklingur hefur hafið störf hjá fyrirtækinu. Er þar átt við hversu vel viðkomandi hentar viðkomandi starfi, teymi og menningu á vinnustað.

Opus Futura: Fyrirsjáanleiki fyrir ráðningu

Fyrirsjáanleikastigið metur líkurnar á farsælu samstarfi fyrir fyrsta viðtalið.

Gegnsæ gervigreind studd vísindalegri nálgun

Markmið okkar er að ávallt að styðja við bestu ákvarðanir í ráðningum og gegnir traust þar lykilhlutverki. Ólíkt svokölluðum „black box“ gervigreindartólum höfum við smíðað gervigreindarlíkan sem styðst við sannreyndar aðferðir við mat á persónubundnum styrkleikum, auk almennra upplýsinga um þekkingu og reynslu. Að baki niðurstöðu hverrar pörunar liggja skýr rök.

Hannað fyrir alla hagsmunaaðila í ráðningum

Með Opus Futura eykst fyrirsjáanleiki og áreiðanleiki niðurstaðna.

Ráðningarþjónustur

Aukin gæði og minni handavinna

Fáðu aðgang að þeim kandidötum sem eru ekki í virkri atvinnuleit en passa við kröfur starfsins og minnkaðu handavinnu.

Stjórnendur

Taktu öruggar ákvarðanir

Kerfið færir þér bestu paranir, byggðar á hlutlægum, ítarlegum gögnum í stað þess að þú byggir matið eingöngu innsæi og ferilskrá.

Mannauðsfólk

Betri árangur í ráðningum

Minnkaðu starfsmannaveltu og sýndu fram á arðsemi ráðningarferilsins með samanburðargreiningu á árangursmælikvörðum.

Við njótum þegar trausts þvert á atvinnugreinar

Fyrirtæki, bæði í eftirlitsskyldum og almennum atvinnugreinum, treysta Opus Futura til að færa þeim nútímalega og skilvirkari ráðningaferla um leið og þau upplifa aukin gæði!

  • Heildsala
  • Sveitarfélög
  • Bílaleiga
  • Ferðaskrifstofur
  • Tæknifyrirtæki
  • Apótek
  • Framleiðsla
  • Bankar
  • Tryggingar
  • Flugfélög
  • Smíði
  • Olía og gas
  • Smásala
  • Fjárfestar
  • Ferðaþjónusta
  • Aflgjafi

Hvað segja viðskiptavinir?

Að finna hæfileikaríkt starfsfólk á samkeppnismarkaði

„Við höfum notað ráðningarlausn Opus Futura hjá Félagsbústöðum með virkilega góðum árangri. Opus Futura notar nýjar og áhugaverðar leiðir til að para saman vinnustaði og fólk á vinnumarkaði og færði okkur mjög færa kandidata. Opus Futura sparaði okkur mikinn tíma og fyrirhöfn, ferlið er mjög faglegt og notendavænt. Þjónustan við viðskiptavini er einnig mjög lipur og vandræðalaus. Ég get hiklaust mælt með því að vinnustaðir noti ráðningarlausn Opus Futura og við munum halda áfram að gera það.“
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða

Fimm ráðningar og enn fleiri í pípunum…

Fastland er rótgróin en vaxandi bókhaldsþjónusta og hefur góða reynslu af notkun Opus Futura. Fyrirtækið hefur þegar ráðið fimm starfsmenn í gegnum lausnina. „Þetta sparar mikinn tíma, við þurfum ekki að flokka út umsækjendur sem uppfylla ekki kröfur okkar um starfið“
Silja Dögg Ósvalsdóttir, framkvæmdastjóri Fastlands

Uppgötvaðu hæfileikaríkt fólk sem er jafnvel ekki í virkri atvinnuleit

Sjáðu hvernig vísindalega studd, gervigreindarknúin pörunarvirkni umbreytir ráðningarferlinu þínu