Skip to content

Persónuleikapróf

Uppgötvaðu styrkleika þína með persónuleikaprófi

Á Opus Futura prófílnum þínum getur þú tekið starfs­tengd persónuleikapróf sem hjálpa þér að skilja styrkleika þína betur og veita þér innsýn í mögulega þætti til vaxtar. Prófin eru þróuð af SHL, sem hefur verið í fararbroddi í mælingum á árangri og persónuleikaprófum í áratugi. Þessi sömu próf eru notuð við ráðningar í stórfyrirtækjum og ráðningarstofum um allan heim.

Um leið og þú hefur lokið persónuleikaprófinu geturðu hlaðið niður skýrslunni þinni sem veitir þér dýrmæta innsýn í styrkleika þína í starfi. Við mælum með að þú veljir að deila niðurstöðum á prófílnum þínum þannig að þú sjáir einnig hvernig styrkleikar þínir mæta þeim sem leitað er að fyrir viðkomandi starf. Niðurstöðurnar útiloka ekki tækifæri heldur gefa báðum aðilum innsýn í styrkleika og væntingar sem hægt er að ræða frekar í viðtölum.

Niðurstöður þínar birtast eingöngu ef þú samþykkir að koma til greina í starf sem þú hefur parast við. Vinnuveitendur fá þá að sjá hvernig þú parast við þá styrkleika sem þeir eru að leita að, en hafðu engar áhyggjur—við munum aldrei deila niðurstöðum þínum án skýrs samþykkis frá þér. 

Taktu næsta skref á þínum starfsferli, auktu sjálfsþekkingu þína og kannaðu möguleikana í dag!

new! Persónuleiki - myndin
iPhone 16 Pro - 1

Umbreyting vinnustaða um allan heim

Blanda SHL af vísindum, tækni og fólki veitir fyrirtækjum meira en aðeins gögn um starfshópinn. Hún veitir þeim visku – visku til að byggja upp lipur, fjölbreytt og sveigjanleg teymi sem knýja áfram stöðugan árangur í síbreytilegum heimi. Opus Futura nýtir þessa vísindalegu þekkingu með því að veita einstaklingum og vinnustöðum aðgengi að SHL persónuleikaprófunum – sem hjálpar til við að mynda hina fullkomnu “pörun”!

Study pic

Breyttu leiknum þegar kemur að þinni atvinnuleit!

Group 1000004726

Taktu stjórn á starfsferlinum þínum

Fáðu dýrmæta innsýn í styrkleika þína og hvað hvetur þig áfram, sem mun hjálpa þér að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref.



Group 1000004731

Skaraðu framúr


Sýndu fram á meira en aðeins færni og reynslu. Varpaðu ljósi á hvernig persónubundnir styrkleikar þínir smellpassa við starfið.

Group 1000004727

Finndu vinnumenningu sem hentar þér

Tryggðu samræmi við gildi fyrirtækisins og að umhverfið henti þér, svo að vinnu upplifun þín verði enn ánægjulegri og persónuleiki þinn fái að njóta sín til fulls.

Í dag er fyrsti dagurinn af því sem eftir er af starfsferlinum þínum. Láttu hann skipta máli!

Persónuleiki þinn og hvatar móta hvernig þú blómstrar á vinnustað. Með persónuleikaprófunum OPQ (Occupational Personality Questionnaire) og MQ (Motivational Questionnaire) frá SHL færðu góða innsýn í styrkleika þína, vinnustíl og hvað knýr þig raunverulega áfram.

  • Uppgötvaðu leiðtogahæfileika þína, aðlögunarhæfni og hvernig þú vinnur í teymi.
  • Skoðaðu hvaða þættir hvetja þig áfram í starfi og hvað dregur úr þér. 
  • Finndu út hvaða störf kalla fram það besta í þér og hámarka árangur.

Taktu persónuleikaprófin strax í dag og parastu við störf sem passa þér fullkomlega!

Group 1000004730