Sagan okkar
Að baki þróun hugbúnaðarlausnar Opus Futura býr áralöng og fjölbreytt reynsla stofnenda af stjórnun fyrirtækja, ráðningum, mannauðsstjórnun, forritun, hugbúnaðarverkfræði ofl. Innan teymisins er einnig að finna öfluga þekkingu á þróun “white box” gervigreindarlíkana og vélnáms, alþjóðlega reynslu af sölu mannauðslausna og teymisstjórnun svo eitthvað sé nefnt.
Við höfum, á starfsferli okkar sem stjórnendur, en einnig sem einstaklingar, ítrekað upplifað áskoranir í ráðningarferlum og vitum hversu gríðarlega kostnaðarsamt og íþyngjandi það getur verið ef ráðningarsambandið gengur ekki upp, bæði fyrir vinnustaði og einstaklinga.
Við byggjum því lausnina okkar á þessari reynslu og þróum ítarlegt forspárgildi um gæði ráðningasambands um leið og við einföldum og styttum ráðningaferlið til muna. Við framkvæmum, og nýtum okkur stöðugar rannsóknir í ráðningum og mannauðsmálum, til að þróa lausn sem með öflugum hætti styður við hámörkun gæða ráðningarsambanda, eyðir út hlutdrægni og aðlagar ráðningaferlið að kröfum þeirra kynslóða sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Með lausninni getum við komið í veg fyrir kostnaðarsöm mistök og boðið nýja nálgun sem eykur skilvirkni og gæði í ráðningaferlinu.






