Skip to content

Ráðningar byggðar á ítarlegri pörun

Opus Futura parar saman einstaklinga og störf á faglegan og ítarlegtan hátt. Kerfið nýtir eigið gervigreindarlíkan og eru niðurstöður studdar með þaulreyndum og faglegum matstækjum. Uppgötvaðu fólk sem ekki er í virkri atvinnuleit og sjáðu hversu vel það uppfyllir kröfur starfsins áður en hefðbundið ráðningaferli hefst.

product_hero

Hefðbundin ráðningaferli byggja enn á aðferðum sem fela í sér óvissu og áhættu

Við leggjum áherslu á gæði niðurstaðna og ítarlega pörun einstaklinga við störf. Fyrirtæki eiga oft erfitt með að finna rétta fólkið og mistök í ráðningum koma oft ekki í ljós fyrr en eftir mikla fjárfestingu í tíma og kostnaði.

OpusFutura-O-icon

Ákvarðanir byggðar á innsæi

Ráðningar byggjast á huglægu mati. Tilfinning (e. Gut feeling) kemur í stað niðurstaðna sem byggðar eru á áreiðanlegum gögnum.

OpusFutura-O-icon

Ómeðvituð hlutdrægni

Að fara eftir innsæi getur kynt undir hlutdrægni. Það sem við þekkjum, t.d. gögn sem sýna fólk með svipaðan bakgrunn er metið framar en það sem okkur er meira framandi.

OpusFutura-O-icon

Mat byggt á ferilskrá

Ferilskrár geta veitt innsýn í fyrri reynslu og menntun. Þær spá hins vegar ekki fyrir um framtíðarárangur eða hversu vel einstaklingur passar í teymi.

OpusFutura-O-icon

Mat byggt á ferilskrá

Ferilskrár sýna fyrri reynslu. Þær spá ekki fyrir um framtíðarárangur eða menningarlega samræmingu.

Fyrirtæki sem nota Opus Futura taka betri og áhættuminni ákvarðanir um ráðningar 

Með ítarlegri gögnum og sjálfvirkni í pörun byggjum við sterkari grunn til góðra ákvarðana.

OpusFutura-O-icon

Forspá um gæði ráðninga

Minnkaðu óvissuna við mat á kandidötum. Taktu ákvarðanir byggðar á rökstuddum niðurstöðum og gögnum í stað innsæis.

OpusFutura-O-icon

Sterkari teymi

Byggðu upp samheldin teymi sem deila sterkum gildum og árangursríku verklagi. Aukinn árangur næst með betri samvinnu og minni starfsmannaveltu.

OpusFutura-O-icon

Minni áhætta í ráðningum

Greinum í upphafi hversu vel einstaklingur passar í teymið, nýtum fagleg og samræmd tól til staðfestingar og lágmörkum líkurnar á kostnaðarsömum mistökum. 

Ráðningarferlið með Opus Futura

Uppgötvaðu það fólk sem parast best

Fáðu aðgang að öflugum hópi fólks, bæði þeim sem eru og eru ekki í virkri atvinnuleit. Við færum þér aðeins þau sem uppfylla kröfur starfsins. Kynnstu framúrskarandi einstaklingum sem þú nærð ekki til í gegnum hefðbundnar atvinnuauglýsingar.

Skoðaðu og forgangsraðaðu

Raðaðu kandidötum eftir tilteknum þáttum. Forgangsraðaðu menningarlegri hæfni, tæknilegri færni eða teymisdynamík út frá þörfum starfsins.

Fáðu itarlega innsýn í gæði pörunarinnar

Lestu gögnin sem liggja að baki pörunarniðurstöðu hvers umsækjanda. Skoðaðu styrkleika og hugsanlegar áskoranir og vertu með allt á hreinu fyrir viðtöl.

Tengstu þeim sem parast best

Þú getur haft samband við kandidata með einstaklingsmiðuðum skilaboðum. Nýttu viðtölin til að kynnast þeim sem sýnt hefur verið fram á að séu líklegastir til að verða besta ráðningin.

product_2
product_3

Flest fólk á vinnumarkaði sækir ekki um störf

80% einstaklinga á vinnumarkaði eru ekki virkir í atvinnuleit. Þeir eru engu að síður opnir fyrir réttu tækifærunum þrátt fyrir að skoða ekki atvinnuauglýsingar eða senda inn umsóknir.

Almennar ráðningar takmarkast við þau 20% sem sækja um. Þetta þýðir að fyrirtæki keppast um að ná til afar takmarkaðs og óskilgreinds hóps einstaklinga á meðan meirihlutinn er ekki aðgengilegur.

Hvers vegna skipta „óvirkir kandidatar“ máli?

Óvirkir kandidatar eru yfirleitt þegar í starfi, nokkuð sáttir og að ná góðum árangri. Þeir eiga það þó sameiginlegt að vilja gjarnan heyra af tækifærum sem gætu hentað þeim enn betur án þess að þurfa að sækja um. Þar kemur Opus Futura til leiks. 

Ráðningar sem byggja á ítarlegri pörun færa ráðningarferlið úr óvissu yfir í fyrirsjáanlegt og faglegt verkferli.

Ráðningar byggðar á ítarlegri pörun

Opus Futura byggir paranir í störf á faglegri greiningu á ítarlegum og sannreyndum gögnum einstaklinga og fyrirtækja. Pörunin byggir á mun fleiri víddum en finna má með orðaleit í ferilskrám.

OpusFutura-O-icon

Skilgreindu pörun

Tilgreindu hvað skiptir máli fyrir viðkomandi starf og teymi

OpusFutura-O-icon

Ábyrg og vísindalega studd gervigreind

Fáðu aðeins þá kandidata sem uppfylla kröfur og passa í hlutverkið

OpusFutura-O-icon

Pörunarniðurstaða og röðun

Sjáðu rökstudda pörunarniðurstöðu

Það sem liggur að baki pörunarniðurstöðu

Hæfni og reynsla

Tæknileg/fagleg hæfni og þekking á viðkomandi sviði

Verk- og samskiptamáti

Hvernig fólk vinnur saman og hefur samskipti

Markmið á starfsferli

Fagleg þróun og vaxtartækifæri

Menning og gildi

Pörun við gildi og menningu fyrirtækisins

Liðsandi

Pörun einstaklinga og núverandi teyma

Kröfur starfs

Sérstök ábyrgð og væntingar

Lausnin metur allar víddir og birtir sem forspárgildi um farsælt ráðningasamband

Hvað er forspárgildi um farsælt ráðningasamband?

Það metur líkur á árangursríku samstarfi

Í forspárgildinu er tekin saman pörun við færni, menningu, verk- og samskiptamáta, teymisdynamíkur, starfsmarkmiða og krafna starfsins.

OpusFutura-O-icon

Líkur á farsælu ráðningasambandi

Mælir gæði pörunar á milli kandidata og fyrirtækja.

OpusFutura-O-icon

Líkur á farsælu vinnusambandi

Markmiðið er að mæla milli fagmanns og fyrirtækja.

OpusFutura-O-icon

Samræmd pörun tekur til allra þátta

Þú þarft ekki að verja tíma þínum í þau sem ekki parast við starfið. 

Rökstuddar niðurstöður gervigreindarlíkansins sýna hvað býr að baki pörun

Báðir aðilar fá skýran rökstuðning pörunarniðurstaðna. Gagnsæi byggir upp traust.

OpusFutura-O-icon

Gagnsæ niðurstaða

Sjáðu hvernig pörunarniðurstaðan er fengin.  Engin falin reiknirit eða óútskýrðar ákvarðanir.

OpusFutura-O-icon

Sundurliðun eftir pörunarþáttum

Hverri pörun fylgir rökstuðningur. Sjáðu hvaða víddir ráða úrslitum um pörun.

OpusFutura-O-icon

Útskýranlegt fyrir hagsmunaaðila

Deilið skýrum rökstuðningi með ráðningarteymum og kandidötum. Byggið upp traust með gagnsæi.

Öryggi og áreiðanleiki pörunarniðurstaðna

Hæfni og reynsla

Ráðningarteymi öðlast aukið traust á niðurstöðum með sýnilegum rökstuðningi.

Draga úr hlutdrægni

Rökstuddar niðurstöður gervigreindarlíkansins afhjúpa mögulega hlutdrægni og tryggja sanngjarnt mat.

Betri ákvarðanir

Gagnsæ innsýn hjálpar teymum að taka upplýstari ákvarðanir um ráðningar.

Lærdómshvetjandi

Fyrirtæki læra hvaða pörunarþættir skipta mestu máli fyrir störf þeirra.

Dæmi um framsetningu á pörun

Þetta dæmi sýnir með mjög einföldðum hætti hvernig Opus Futura útskýrir niðurstöðu pörunar einstaklings og starfs.

product_preview

Fáðu innsýn í hvernig þú getur uppgötvað bestu kandidatana í þín störf

Skráðu tengiliðaupplýsingar þínar og við munum bjóða þér upp á stutta kynningu á kerfinu sem er sniðin að þínu fyrirtæki.