Ráðningar byggðar á ítarlegri pörun
Opus Futura parar saman einstaklinga og störf á faglegan og ítarlegtan hátt. Kerfið nýtir eigið gervigreindarlíkan og eru niðurstöður studdar með þaulreyndum og faglegum matstækjum. Uppgötvaðu fólk sem ekki er í virkri atvinnuleit og sjáðu hversu vel það uppfyllir kröfur starfsins áður en hefðbundið ráðningaferli hefst.

Hefðbundin ráðningaferli byggja enn á aðferðum sem fela í sér óvissu og áhættu
Við leggjum áherslu á gæði niðurstaðna og ítarlega pörun einstaklinga við störf. Fyrirtæki eiga oft erfitt með að finna rétta fólkið og mistök í ráðningum koma oft ekki í ljós fyrr en eftir mikla fjárfestingu í tíma og kostnaði.
Ákvarðanir byggðar á innsæi
Ráðningar byggjast á huglægu mati. Tilfinning (e. Gut feeling) kemur í stað niðurstaðna sem byggðar eru á áreiðanlegum gögnum.
Ómeðvituð hlutdrægni
Að fara eftir innsæi getur kynt undir hlutdrægni. Það sem við þekkjum, t.d. gögn sem sýna fólk með svipaðan bakgrunn er metið framar en það sem okkur er meira framandi.
Mat byggt á ferilskrá
Ferilskrár geta veitt innsýn í fyrri reynslu og menntun. Þær spá hins vegar ekki fyrir um framtíðarárangur eða hversu vel einstaklingur passar í teymi.
Mat byggt á ferilskrá
Ferilskrár sýna fyrri reynslu. Þær spá ekki fyrir um framtíðarárangur eða menningarlega samræmingu.
Fyrirtæki sem nota Opus Futura taka betri og áhættuminni ákvarðanir um ráðningar
Með ítarlegri gögnum og sjálfvirkni í pörun byggjum við sterkari grunn til góðra ákvarðana.
Forspá um gæði ráðninga
Minnkaðu óvissuna við mat á kandidötum. Taktu ákvarðanir byggðar á rökstuddum niðurstöðum og gögnum í stað innsæis.
Sterkari teymi
Byggðu upp samheldin teymi sem deila sterkum gildum og árangursríku verklagi. Aukinn árangur næst með betri samvinnu og minni starfsmannaveltu.
Minni áhætta í ráðningum
Greinum í upphafi hversu vel einstaklingur passar í teymið, nýtum fagleg og samræmd tól til staðfestingar og lágmörkum líkurnar á kostnaðarsömum mistökum.
Ráðningarferlið með Opus Futura
Uppgötvaðu það fólk sem parast best
Fáðu aðgang að öflugum hópi fólks, bæði þeim sem eru og eru ekki í virkri atvinnuleit. Við færum þér aðeins þau sem uppfylla kröfur starfsins. Kynnstu framúrskarandi einstaklingum sem þú nærð ekki til í gegnum hefðbundnar atvinnuauglýsingar.
Skoðaðu og forgangsraðaðu
Raðaðu kandidötum eftir tilteknum þáttum. Forgangsraðaðu menningarlegri hæfni, tæknilegri færni eða teymisdynamík út frá þörfum starfsins.
Fáðu itarlega innsýn í gæði pörunarinnar
Lestu gögnin sem liggja að baki pörunarniðurstöðu hvers umsækjanda. Skoðaðu styrkleika og hugsanlegar áskoranir og vertu með allt á hreinu fyrir viðtöl.
Tengstu þeim sem parast best
Þú getur haft samband við kandidata með einstaklingsmiðuðum skilaboðum. Nýttu viðtölin til að kynnast þeim sem sýnt hefur verið fram á að séu líklegastir til að verða besta ráðningin.

Ráðningar sem byggja á ítarlegri pörun færa ráðningarferlið úr óvissu yfir í fyrirsjáanlegt og faglegt verkferli.
Ráðningar byggðar á ítarlegri pörun
Opus Futura byggir paranir í störf á faglegri greiningu á ítarlegum og sannreyndum gögnum einstaklinga og fyrirtækja. Pörunin byggir á mun fleiri víddum en finna má með orðaleit í ferilskrám.
Skilgreindu pörun
Tilgreindu hvað skiptir máli fyrir viðkomandi starf og teymi
Ábyrg og vísindalega studd gervigreind
Fáðu aðeins þá kandidata sem uppfylla kröfur og passa í hlutverkið
Pörunarniðurstaða og röðun
Sjáðu rökstudda pörunarniðurstöðu
Það sem liggur að baki pörunarniðurstöðu
Hæfni og reynsla
Tæknileg/fagleg hæfni og þekking á viðkomandi sviði
Verk- og samskiptamáti
Hvernig fólk vinnur saman og hefur samskipti
Markmið á starfsferli
Fagleg þróun og vaxtartækifæri
Menning og gildi
Pörun við gildi og menningu fyrirtækisins
Liðsandi
Pörun einstaklinga og núverandi teyma
Kröfur starfs
Sérstök ábyrgð og væntingar
Lausnin metur allar víddir og birtir sem forspárgildi um farsælt ráðningasamband
Hvað er forspárgildi um farsælt ráðningasamband?
Það metur líkur á árangursríku samstarfi
Í forspárgildinu er tekin saman pörun við færni, menningu, verk- og samskiptamáta, teymisdynamíkur, starfsmarkmiða og krafna starfsins.
Líkur á farsælu ráðningasambandi
Mælir gæði pörunar á milli kandidata og fyrirtækja.
Líkur á farsælu vinnusambandi
Markmiðið er að mæla milli fagmanns og fyrirtækja.
Samræmd pörun tekur til allra þátta
Þú þarft ekki að verja tíma þínum í þau sem ekki parast við starfið.
Rökstuddar niðurstöður gervigreindarlíkansins sýna hvað býr að baki pörun
Báðir aðilar fá skýran rökstuðning pörunarniðurstaðna. Gagnsæi byggir upp traust.
Gagnsæ niðurstaða
Sjáðu hvernig pörunarniðurstaðan er fengin. Engin falin reiknirit eða óútskýrðar ákvarðanir.
Sundurliðun eftir pörunarþáttum
Hverri pörun fylgir rökstuðningur. Sjáðu hvaða víddir ráða úrslitum um pörun.
Útskýranlegt fyrir hagsmunaaðila
Deilið skýrum rökstuðningi með ráðningarteymum og kandidötum. Byggið upp traust með gagnsæi.
Öryggi og áreiðanleiki pörunarniðurstaðna
Hæfni og reynsla
Ráðningarteymi öðlast aukið traust á niðurstöðum með sýnilegum rökstuðningi.
Draga úr hlutdrægni
Rökstuddar niðurstöður gervigreindarlíkansins afhjúpa mögulega hlutdrægni og tryggja sanngjarnt mat.
Betri ákvarðanir
Gagnsæ innsýn hjálpar teymum að taka upplýstari ákvarðanir um ráðningar.
Lærdómshvetjandi
Fyrirtæki læra hvaða pörunarþættir skipta mestu máli fyrir störf þeirra.
Dæmi um framsetningu á pörun
Þetta dæmi sýnir með mjög einföldðum hætti hvernig Opus Futura útskýrir niðurstöðu pörunar einstaklings og starfs.

Fáðu innsýn í hvernig þú getur uppgötvað bestu kandidatana í þín störf
Skráðu tengiliðaupplýsingar þínar og við munum bjóða þér upp á stutta kynningu á kerfinu sem er sniðin að þínu fyrirtæki.

