Skip to content

Öflugar ráðningarlausnir fyrir öll fyrirtæki

Opus Futura styður stjórnendur, ráðningarstjóra og mannauðsteymi við að taka öruggari ákvarðanir um ráðningar.

diego-ph-fIq0tET6llw-unsplash

Byggðu upp sterkari teymi og taktu ákvarðanir um ráðningar með meiri fyrirsjáanleika

Lausn Opus Futura lágmarkar óvissu í ráðningaferlinu. Ráðningar sem ekki leiða til árangursríks samstarfs valda mikilli sóun, bæði á tíma, framleiðni teyma og beinum kostnaði. 


Fyrir fyrirtækjaeigendur

Byggðu upp teymi sem styrkja fyrirtækið þitt

Hver ráðning hefur áhrif langtímaárangur fyrirtækisins. Fólkið sem gengur til liðs við fyrirtækið þitt hefur áhrif á framleiðni, menningu og getu til sjálfbærs vaxtar.

solutions_2
solutions_3

Góð ráðning skilar starfsmanni sem aðlagast vel núverandi teymi, er virkur og finnur hvata til að leggja sitt af mörkum til árangurs

Opus Futura hjálpar til við að tryggja að ráðningarákvarðanir séu studdar af faglegum og sannreyndum gögnum og matstækjum, frekar en innsæi eingöngu. Með því að para faglega og persónubundna þætti einstaklinga og starfa, varpar kerfið ljósi á þá einstaklinga sem eru líklegastir til að ná árangri í fyrirtækinu þínu.

Stuðlaðu að vexti fyrirtækisins með aðgengi að sterkari ráðningargrunni

Eftir því sem fyrirtæki vaxa verða ráðningar tíðari og flóknari. Ítarlegar og stöðugar matsaðferðir hjálpa til við að viðhalda gæðum ráðninga á öllum vaxtarstigum.

Opus Futura býður upp á sannreyndar og áreiðanlegar matsaðferðir við pörun einstaklinga og allra starfa, óháð starfsgrein.  

solutions_4

Taktu betur ígrundaðar ráðningarákvarðanir studdar af faglegu matsferli og sannreyndum gögnum

Opus Futura býður upp á skýra og samræmda sýn á hversu vel kandidatar parast við störf.

Fyrir stjórnendur

Finndu þá einstaklinga sem munu ná árangri í teyminu þínu

Ákvarðanir um ráðningar móta langtímaárangur fyrirtækja. Fólkið sem gengur til liðs við fyrirtækið þitt hefur áhrif á framleiðni, menningu og getu til sjálfbærs vaxtar.

Opus Futura parar kandidata við kröfur starfsins og eðli vinnustaðarins. Pörunin byggir á fjölmörgum þáttum faglegrar hæfni og dregur fram þá einstaklinga sem eru líklegastir til að standa sig vel innan teymisins.

solutions_5
solutions_6

Einbeittu þér að efnilegustu einstaklingunum

Í stað þess að skoða fjölda prófíla geta stjórnendur einbeitt sér að þeim sem parast best og eru líklegastir til að eiga í farsælu ráðningarsambandi við fyrirtækið.

Opus Futura veitir stjórnendum greinargóðan samanburð á milli einstaklinga og forgangsraðar þeim sem passa best við starfið, teymið og starfsumhverfið.

Skýrari sýn á líklega frammistöðu í starfi

Pörunin veitir innsýn sem varpar ljósi á hæfni, persónubundna styrkleika og hvernig þeir stuðla að því að einstaklingur uppfylli kröfur starfsins.

Þessi nálgun styður við faglegt viðtalsferli og hjálpar stjórnendum að taka öruggar ráðningarákvarðanir, byggðar á sannreyndum gögnum og samræmdu mati.

solutions_7

Byggðu ákvarðanir þínar á sannreyndum gögnum, samræmdu og faglegu mati

Opus Futura veitir skýra og samræmda sýn á kandidata og rökstyður hvers vegna þeir parast við störf

Fyrir mannauðsteymi

Skilvirkara ráðningarferli, mannauðsfólk nýtir tíma sinn í það sem það gerir best

Pörunarvirkni Opus Futura einfaldar mannauðsteymum að bera kennsl á efnilega kandidata og sparar mikinn tíma og kostnað við úrvinnslu umsókna og staðfestingu gagna. Ráðningarfulltrúar velja úr hópi fyrirfram paraðra einstaklinga sem allir eiga erindi í starfið og hafa staðfest áhuga sinn, hvort sem þeir sóttu um eða ekki. Minni tími í handavinnu sem veitir kost á meiri tíma í samskipti við spennandi kandidata.

solutions_8
product_hero

Aðgengi að stöðugu matsferli og faglegum samanburði

Pörunin og birting niðurstaðna hennar gerir mannauðsteymum kleift að bera saman umsækjendur með því að nota sambærileg gögn. Þetta hjálpar til við að tryggja að mat á umsækjendum sé sanngjarnt, faglegt og stöðugt á milli starfa og ráðningarferla.

Fáðu faglegan stuðning við vöxt fyrirtækisins

Eftir því sem fyrirtæki vaxa verða ráðningar tíðari og flóknari. Samræmt mat á einstaklingum og pörun stuðlar að stöðugum gæðum ráðninga á meðan fyrirtækið stækkar.

Opus Futura býður upp á faglega og samræmda nálgun sem færir stjórnendum ávallt færustu einstaklingana í hvert starf, óháð starfsgrein.

solutions_10

Fáðu aðstoð við að greina ráðningarþarfir þínar

Vinnustaðir búa að mismunandi ráðningaferli og aðgengi að fagþekkingu. Við skilgreinum réttu nálgunina og bestu leið að markmiðum þínum með þér.

Við njótum trausts í öllum atvinnugreinum

Ótal vinnustaðir, bæði á einkamarkaði og hinum opinbera, treysta á faglega lausn Opus Futura sem færir þeim aukin gæði, skilvirkni og árangur.

Heildsala Heildsala
Sveitarfélög Sveitarfélög
Bílaleigur Bílaleigur
Ferðaþjónusta Ferðaþjónusta
Tæknifyrirtæki Tæknifyrirtæki
Lyfjafyrirtæki Lyfjafyrirtæki
Framleiðslufyrirtæki Framleiðslufyrirtæki
Bankar og tryggingafélög Bankar og tryggingafélög
Opinber þjónusta Opinber þjónusta
Flugfélög Flugfélög
Byggingafélög Byggingafélög
Olíufélög Olíufélög
Smásala Smásala
Fjárfestingafélög Fjárfestingafélög
Hótel og veitingaþjónusta Hótel og veitingaþjónusta
Orkufyrirtæki Orkufyrirtæki