Öflugar ráðningarlausnir fyrir öll fyrirtæki
Opus Futura styður stjórnendur, ráðningarstjóra og mannauðsteymi við að taka öruggari ákvarðanir um ráðningar.

Byggðu upp sterkari teymi og taktu ákvarðanir um ráðningar með meiri fyrirsjáanleika
Lausn Opus Futura lágmarkar óvissu í ráðningaferlinu. Ráðningar sem ekki leiða til árangursríks samstarfs valda mikilli sóun, bæði á tíma, framleiðni teyma og beinum kostnaði.
Fyrir fyrirtækjaeigendur
Byggðu upp teymi sem styrkja fyrirtækið þitt
Hver ráðning hefur áhrif langtímaárangur fyrirtækisins. Fólkið sem gengur til liðs við fyrirtækið þitt hefur áhrif á framleiðni, menningu og getu til sjálfbærs vaxtar.

Stuðlaðu að vexti fyrirtækisins með aðgengi að sterkari ráðningargrunni
Eftir því sem fyrirtæki vaxa verða ráðningar tíðari og flóknari. Ítarlegar og stöðugar matsaðferðir hjálpa til við að viðhalda gæðum ráðninga á öllum vaxtarstigum.
Opus Futura býður upp á sannreyndar og áreiðanlegar matsaðferðir við pörun einstaklinga og allra starfa, óháð starfsgrein.

Taktu betur ígrundaðar ráðningarákvarðanir studdar af faglegu matsferli og sannreyndum gögnum
Opus Futura býður upp á skýra og samræmda sýn á hversu vel kandidatar parast við störf.
Fyrir stjórnendur
Finndu þá einstaklinga sem munu ná árangri í teyminu þínu
Ákvarðanir um ráðningar móta langtímaárangur fyrirtækja. Fólkið sem gengur til liðs við fyrirtækið þitt hefur áhrif á framleiðni, menningu og getu til sjálfbærs vaxtar.
Opus Futura parar kandidata við kröfur starfsins og eðli vinnustaðarins. Pörunin byggir á fjölmörgum þáttum faglegrar hæfni og dregur fram þá einstaklinga sem eru líklegastir til að standa sig vel innan teymisins.

Skýrari sýn á líklega frammistöðu í starfi
Pörunin veitir innsýn sem varpar ljósi á hæfni, persónubundna styrkleika og hvernig þeir stuðla að því að einstaklingur uppfylli kröfur starfsins.
Þessi nálgun styður við faglegt viðtalsferli og hjálpar stjórnendum að taka öruggar ráðningarákvarðanir, byggðar á sannreyndum gögnum og samræmdu mati.

Byggðu ákvarðanir þínar á sannreyndum gögnum, samræmdu og faglegu mati
Opus Futura veitir skýra og samræmda sýn á kandidata og rökstyður hvers vegna þeir parast við störf
Fyrir mannauðsteymi
Skilvirkara ráðningarferli, mannauðsfólk nýtir tíma sinn í það sem það gerir best
Pörunarvirkni Opus Futura einfaldar mannauðsteymum að bera kennsl á efnilega kandidata og sparar mikinn tíma og kostnað við úrvinnslu umsókna og staðfestingu gagna. Ráðningarfulltrúar velja úr hópi fyrirfram paraðra einstaklinga sem allir eiga erindi í starfið og hafa staðfest áhuga sinn, hvort sem þeir sóttu um eða ekki. Minni tími í handavinnu sem veitir kost á meiri tíma í samskipti við spennandi kandidata.

Fáðu faglegan stuðning við vöxt fyrirtækisins
Eftir því sem fyrirtæki vaxa verða ráðningar tíðari og flóknari. Samræmt mat á einstaklingum og pörun stuðlar að stöðugum gæðum ráðninga á meðan fyrirtækið stækkar.
Opus Futura býður upp á faglega og samræmda nálgun sem færir stjórnendum ávallt færustu einstaklingana í hvert starf, óháð starfsgrein.

Fáðu aðstoð við að greina ráðningarþarfir þínar
Vinnustaðir búa að mismunandi ráðningaferli og aðgengi að fagþekkingu. Við skilgreinum réttu nálgunina og bestu leið að markmiðum þínum með þér.
Við njótum trausts í öllum atvinnugreinum
Ótal vinnustaðir, bæði á einkamarkaði og hinum opinbera, treysta á faglega lausn Opus Futura sem færir þeim aukin gæði, skilvirkni og árangur.



