Skip to content

Sveigjanleg þjónusta, án fyrirfram skuldbindinga

Byrjaðu á stakri ráðningu eða veldu fjölbreyttari þjónustu og stöðugt aðgengi að lausninni. Veldu þá leið sem uppfyllir þarfir þíns vinnustaðar.

pricing_1

Tvær leiðir til að hefja notkun

Vinnustaðir hafa mismunandi þarfir, innanhúss ferla og þekkingu á ráðningum.  Sumir þurfa öðru hvoru að ráða fólk. Aðrir eru stöðugt í ráðningum. Opus Futura býður upp á sveigjanlegar leiðir sem uppfylla þarfir mismunandi vinnustaða.

Þú getur byrjað á að ráða í eitt starf og kynnast lausninni.

Þú getur einnig keypt áskrift sem innifelur ótakmarkaða notkun lausnarinnar, val á milli 150 færniprófa auk fjölbreyttra og ítarlegra gagna um stöðu vinnustaðarins á markaði 

Ráðning í stakt starf

Byrjaðu á að ráða í eitt starf

Byrjaðu á að ráða í eitt starf til að kynnast lausninni og fá innsýn í hvernig pörunin virkar í reynd.

Lausnin færir þér þá einstaklinga sem parast best, stutt með ítarlegum gögnum, skýringu á niðurstöðum og innsýn í hversu sterkt ráðningarsamband viðkomandi gæti átt við fyrirtækið.

Þetta gerir teyminu þínu kleift að meta kandidata út frá faglegri pörun, ekki innsæi.

pricing_3
pricing_2

Þú færð tækifæri til að kynnast kerfinu áður en ákvörðun er tekin

Stök ráðning gerir þér kleift að prófa kerfið og alla virkni þess í raunverulegum aðstæðum.

Ef þú ákveður að halda áfram með áskrift er kostnaðurinn við þessa fyrstu ráðningu dreginn frá.

Þetta gefur þér leið til að kynnast og meta árangur lausnarinnar, án langtíma skuldbindinga.

Þú færð:

  • Aðgengi að þeim einstaklingum sem parast best, hvort sem þeir eru í virkri atvinnuleit eða ekki
  • Ítarlega greiningu á niðurstöðum sannreyndra matstækja og gagna
  • Skýringar á pörunarniðurstöðu
  • Innsýn í líkur á farsælu ráðningarsambandi

Byrjaðu á einni ráðningu og fáðu reynslu af virkni lausnarinnar

pricing_4

Áskrift borgar sig margfalt ef þú ert reglulega í leit að starfsfólki

Áskriftarleið

Áskrift tryggir markvissa öflun gagna og mælingar á árangri

Áskrift að lausninni veitir aðgengi að ítarlegum greiningum, mælingum og samanburði á árangri vinnustaðarins.

Kerfið uppfærir gögn og mælingar með stöðugum hætti og veitir þér innsýn í stöðu og ásýnd vinnustaðarins sem engin lausn hefur veitt hingað til.

pricing_5

Það sem þú færð með Opus Futura

Lausnin færir þér sjálfvirkt ráðningaferli, aðlagað að þínum þörfum og stöðugum mælingum á árangri.

OpusFutura-O-icon

Yfir 150 hæfni- og persónuleikapróf

OpusFutura-O-icon

Ótakmarkaður fjöldi atvinnuauglýsinga og notenda innanhúss

OpusFutura-O-icon

Öflug notendaþjónusta og stuðningur

OpusFutura-O-icon

Tengist öllum helstu mannauðskerfum

OpusFutura-O-icon

Námskeið fyrir ráðningarfulltrúa og stjórnendateymi

OpusFutura-O-icon

Kynningar á uppfærslum og þjálfun nýrra notenda

solutions_7

Ábyrg, rökstudd og áreiðanleg notkun gervigreindar 

Opus Futura mælir niðurstöður parana með stöðugum hætti og leggur áherslu á að tryggja hlutlægar og áreiðanlegar niðurstöður.

Hver pörun byggir á sannreyndum matstækjum sem mæla m.a. persónubundna færni, reynslu, væntingar einstaklinga og hvernig það mætir kröfum starfa.

Þetta gerir teyminu þínu kleift að skilja hvernig ákvarðanir eru teknar og treysta niðurstöðunni.

Segðu okkar hverjar þarfir þínar eru

Við finnum bestu leiðina fyrir þig út frá markmiðum þínum..